Dagana 1.-3.maí ætla Stubbar (10-12 ára börn í barnastarfinu) að bregða sér á mót í Vatnaskóg. Farið verður frá kirkjunni kl.08:00 stundvíslega. Hér fylgja DRÖG að dagskrá, mótsstjóri sr.Sigurður Grétar á Hvammstanga áskilur sér allan rétt til að breyta dagskrá ef að svo ber undir.
TTT-MÓT Í VATNASKÓGI 1.-3. MAÍ 2009
Fös. 1. maí
12.00 Komið á staðinn. Hópur A kemur sér fyrir skv. auglýstu skipulagi. Hópur B fer beint í mat.Allir koma sér fyrir skv. auglýstu skipulagi.
12.30 Hópur A í mat, hópur B kemur sér fyrir. Í þessum matartímum eru reglur kynntar.
13.00 Frjáls tími. Bátar, íþróttahús, knattspyrna ofl. tilboð.
15.30 Kaffi
16.00 Frjáls tími. Bátar, íþróttahús ofl.
19.00 Kvöldmatur hópur A (auglýst á staðnum hver er í hvorum hóp)
19.30 Kvöldmatur hópur B
20.00 Frjáls tími – íþróttahús, staðarskoðun, fótbolti, e.t.v. bátar.
21.30 Kvöldvaka í íþróttahúsi.
22.30 Kvöldhressing
22.45 Kapellustund. Umsjón Sig. Grétar
23.30 Allir inn á sín herbergi – búa sig í háttinn.
00.00 Svefnfriður
Lau. 2. maí
08.30 Vakið
08.50 Morgunmatur -fljótandi
09.45 Morgunstund í íþróttahúsi – Umsjón SGS, söngur, fræðsla.
10.30 Hópastarf.
12.00 Hádegisverður A
12.30 Hádegisv. B
13.00 Frjáls tími – ýmis dagskrártilboð eftir veðri.
15.30 Kaffi – fljótandi umferð
16.00 Frjáls tími – áframhaldandi dagskrártilboð
19.00 Kvöldmatur A
19.30 Kvöldmatur B
19.30 Undirbúningur kvöldvöku, frjáls tími.
20.30 Kvöldvaka, atriði frá krökkum, söngur ofl
22.00 Farið í Hallgrímskirkju í Saurbæ – Sælustund með söng og hugvekju. 23.15 Kvöldhressing fyrir þau sem vilja, ávextir
23.30 Allir í háttinn
00.30 Svefnfriður
Sun. 3. maí
09.00 Vakið – tiltekt, stafla dýnum. Grófhreinsa herbergi og sópa. Halda sunddóti aðgreindu
09.30 Morgunmatur – fljótandi
10.00 Frjálst
11.00 Útimessa í Skógarkirkju
11.45 Hádegisverður Sauðárkr. A
12.15 Hádegisverður B
13.00 Brottför. Farið í sund í Borgarnesi.