Minni á vorferð Stubbanna í Vatnaskóg fyrstu helgina í maí. Börnin eru beðin að koma með skráningarblað á næsta fund (18.apríl) með leyfi frá foreldrum/forráðamönnum. Nánari upplýsingar um ferðina:
TTT-mót í Vatnaskógi 3.-5. maí
Þátttakendur: Hvammstangi/Melstaður, Borðeyri, Skagaströnd, Hofsós, Sauðárkrókur, Stafholt.
Tímasetningar: Brottför frá Sauðárkrókskirkju, föstudaginn 3. maí kl.14.30 og áætluð heimkoma kl. 18.00 sunnudaginn 5. maí.
Æskilegur viðlegubúnaður: Sæng og sængurföt/svefnpoki, snyrtidót s.s. til tann- og hársnyrtinga, inni-/ útiföt, íþróttaskór f/íþróttahús, sunddót.
Bannað að koma með: Hljómflutningstæki með hátölurum, dvd spilarar, tölvur!
Kostnaður: 8500 kr. Auk þess vasapeningur f/ sjoppustoppi.
Hagnýtar upplýsingar: Í Vatnaskógi eru bátar, íþróttahús, íþróttasvæði, skógur, gönguleiðir, kassabílar og margt fleira.
Vináttukveðja, Sigríður Gunnarsdóttir vs.453 5930/ 862 8293 sigridur.gunnarsdottir@kirkjan.is